„Við byrjuðum leikinn allt í lagi en eftir 20 mínútur þá vorum við ekki með," sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals við Fótbolta.net eftir 4-1 tap gegn Leikni í úrslitaleik Reykajvíkurmótsins í kvöld.
Ólafur segir að Valsmenn séu í leit að liðsstyrk fyrir átökin í Pepsi-deildinni í sumar.
„Ég á von á því að við fáum einhverja leikmenn. Við þurfum að stækka hópinn og með því þá aukum við gæðin og fáum meiri samkeppni. Við erum að skoða þessi mál. Ég er að leita að góðum fótboltamönnum og mönnum með gott hugarfar."
Orðrómur hefur verið um að Gary Martin sé á förum frá KR en Valsmenn hafa meðal annars verið orðaðir við hann.
„Ég vildi óska þess að við værum að fá hann, hann er frábær fótboltamaður. Mér að vitandi þá er hann ekki að koma í Val," sagði Ólafur sem neitar því að Valur hafi lagt fram tilboð í hann núna.
„Okkur var boðið að fá hann í fyrra og þá gerðum við tilboð en við erum ekki búnir að því núna."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir