Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, hvetur Luka Modric til að vera duglegri að láta boltann vaða eftir að Króatinn tryggði liðinu 2-1 sigur gegn Granada í spænsku La Liga í gærkvöldi.
Modric skoraði sigurmark Real Madrid skömmu fyrir leikslok með sannkölluðum þrumufleyg utan teigs og vonar Zidane að það verði til þess að hann skjóti oftar.
Modric skoraði sigurmark Real Madrid skömmu fyrir leikslok með sannkölluðum þrumufleyg utan teigs og vonar Zidane að það verði til þess að hann skjóti oftar.
„Hann skoraði glæsilegt mark og gaf okkur líf," sagði Zidane.
„Fyrst og fremst gaf hann okkur þrjú stig, ég er ánægður fyrir hans hönd. Hann verður að skjóta meira því hann er með góðan skotfót."
Athugasemdir