Fotbolti.net
08.05.15 - 16:40
Magnús Már Einarsson

Ragnar Þór Gunnarsson í Tindastól (Staðfest)

Ragnar Þór Gunnarsson.

Ragnar Þór Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll hefur fengið framherjann Ragnar Þór Gunnarsson á láni fyrir keppni sumarsins í 2. deildinni.

Hinn tvítugi Ragnar gekk í vikunni til liðs við Selfoss frá Val.
Hann stoppaði stutt við á Selfossi því hann hefur nú samið við Stólana á láni.

Ragnar spilaði þrjá leiki með Val í Pepsi-deildinni í fyrra og síðan níu leiki í fyrstu deildinni á láni hjá Selfyssingum.

Tindastóll mætir Leikni Fáskrúðsfirði í fyrstu umferðinni í 2. deildinni á morgun.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram á morgun en vegna vallaraðstæðna á Sauðárkróki fer hann fram í Boganum á sunnudag klukkan 16:30.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.