Fotbolti.net
08.06.16 - 20:05
Ívan Guðjón Baldursson

Borgunarbikarinn: Endurkoma Vestra mislukkaðist

Ósvald Jarl gerði tvö mikilvæg mörk í kvöld.

Ósvald Jarl gerði tvö mikilvæg mörk í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borgun
Vestri 2 - 3 Fram
0-1 Ósvald Jarl Traustason (\'5)
0-2 Ósvald Jarl Traustason (\'54)
0-3 Hlynur Atli Magnússon (\'57)
1-3 Hjalti Hermann Gíslason (\'83)
2-3 Hjalti Hermann Gíslason (\'85)
Hetjuleg endurkomutilraun Vestra mislukkaðist þegar liðið fékk Fram í heimsókn í Borgunarbikarnum í kvöld.

Ósvald Jarl Traustason kom gestunum yfir snemma í leiknum og tvöfaldaði hann forystuna snemma í síðari hálfleik, skömmu áður en Hlynur Atli Magnússon bætti þriðja marki Framara við.

Leikurinn virtist fjara út við þriðja mark Framara en þá var Hjalta Hermanni Gíslasyni skipt inná í liði Vestra.

Hjalti minnkaði muninn á 83. mínútu og gerði svo annað mark tveimur mínútum síðar og úr varð leikur. Aðeins mínútu síðar slapp Hjalti í gegn og hefði getað fullkomnað þrennu á fjórum mínútum ef ekki fyrir Stefano Layeni, sem varði frá honum.

Heimamenn vildu svo fá vítaspyrnu undir lokin þegar Pétri Bjarnasyni var ýtt innan vítateigs. Helga Mikaeli Jónssyni, dómara leiksins, fannst atvikið ekki refsivert og niðurstaðan 3-2 sigur Fram á Ísafirði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.