08.09.17 - 15:55
Magnús Már Einarsson
Steindi spáir í leiki helgarinnar á Englandi

Edda Björgvins og Steindi eru í stórum hlutverkum í ,,Undir trénu.\"

Mynd: Úr einkasafni

Manchester City burstar Liverpool samkvæmt spáni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Edda Björgvins og Steindi eru í stórum hlutverkum í ,,Undir trénu.\"

Mynd: Úr einkasafni
Viðar Skjóldal, enski, var með fimm rétta þegar hann spáði í síðustu umferð í ensku úrvalsdeildinni.
Steinþór Hróar Steinþórsson, Steindi Jr., spáir í leikina að þessu sinni.
Steindi er í aðalhlutverki í kvikmyndinni „Undir trénu\" sem er nú sýnd í kvikmyndahúsum.
Steinþór Hróar Steinþórsson, Steindi Jr., spáir í leikina að þessu sinni.
Steindi er í aðalhlutverki í kvikmyndinni „Undir trénu\" sem er nú sýnd í kvikmyndahúsum.
Manchester City 5 - 0 Liverpool (11:30 á morgun)
Það er allt búið að vera í apaskít hjá Liverpool mönnum. Svanþór Einarsson, fasteignasali og vinur minn úr Mosfellsbæ, er mikill púllari og hann hefur misst alla trú á sínum mönnum.
Arsenal 9 - 0 Bournemouth (14:00 á morgun)
Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri einhvern mann segja Bournemouth. Mér finnst þetta hljóma meira eins og eftirréttur heldur en fótboltalið.
Brighton 2 - 0 WBA (14:00 á morgun)
Ég verð að gefa Brighton þetta. Ég fór til Brighton fyrir stuttu. Það er mjög góður andi þar og mér leist vel á borgina. Ég borðaði indverskan mat sem fór vel í mig og blandaði geði við innfædda.
Everton 3 - 1 Tottenham (14:00 á morgun)
Ég hef alltaf séð sjálfan mig svolítið í Gylfa. Hann minnir mig á sjálfan mig þegar ég mæti á æfingar hjá Hvíta Riddaranum. Ég held að þetta verði mjög þægilegur leikur fyrir Gylfa og félaga.
Leicester 0 - 1 Chelsea (14:00 á morgun)
Þetta eru meistarar síðustu tveggja ára. Ég spái mjög hörðum leik og jafnvel alvarlegum meiðslum.
Southampton - Watford (14:00 á morgun)
Ég held að þessi leikur verði ekki spilaður. Þessum leik verður frestað. Ég hef samt alltaf verð lúmskur Southampton maður og þeir klára þetta næst þegar þessi lið eigast við.
Stoke 1 - 0 Manchester United (16:30 á morgun)
Lukaku mætir ryðgaður til leiks og skorar sjálfsmark á fyrstu mínútunum. Þetta mun brjóta liðsandann niður og þetta verður mjög erfitt fyrir rauðu djöflana eftir það. Pogba fær rauða spjaldið fyrir mas við dómarann í síðari hálfleik.
Burnley 3 - 0 Crystal Palace (12:30 á sunnudag)
Ég og Jói Berg erum mjög góðir counter-strike félagar. Það var kannski ágætt að hann lagði það á hilluna og tók fótboltann í staðinn. Hann kemur gríðarlega sterkur inn og skorar þrennu í þessum leik.
Swansea 0 - 11 Newcastle (15:00 á sunnudag)
Newcastle menn svitna ekki einu sinni í þessum leik. Ef Alan Shearer og Andy Cole væru með þá væri Newcastle meistari nú þegar. Þessi leikur myndi fara 24-0 ef þeir væru með enda er Alan Shearer besti leikmaður sem uppi hefur verið.
West Ham 0 - 2 Huddersfield (19:00 á mánudag)
Nýliðarnir halda áfram að koma á óvart og rúlla yfir West Ham. Steve Mounie, frá Benín, mun pressa mikið í leiknum og skora mark sem hann fagnar með því að rífa sápukúlur af stuðningsmanni West Ham. Mér hefur alltaf fundist West Ham vera rest og rusl í deildinni. Þeir eru bara heppnir að fá að spila á móti Steve.
Fyrri spámenn:
Gummi Ben (5 réttir)
Viðar Skjóldal - Enski (5 réttir)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (3 réttir)

Manchester City burstar Liverpool samkvæmt spáni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 7 | +12 | 21 |
| 2 | Arsenal | 7 | +6 | 18 |
| 3 | Brighton | 7 | +18 | 16 |
| 4 | Chelsea | 7 | +4 | 13 |
| 5 | Liverpool | 7 | +1 | 12 |
| 6 | Brentford | 7 | +5 | 10 |
| 7 | Leeds | 7 | +3 | 10 |
| 8 | Everton | 7 | +1 | 10 |
| 9 | Hull City | 7 | +1 | 9 |
| 10 | Ipswich Town | 7 | -4 | 9 |
| 11 | Newcastle | 7 | -4 | 8 |
| 12 | Aston Villa | 7 | -4 | 8 |
| 13 | Man Utd | 7 | 0 | 7 |
| 14 | Crystal Palace | 7 | -8 | 7 |
| 15 | Bournemouth | 7 | -4 | 6 |
| 16 | Tottenham | 7 | -4 | 6 |
| 17 | Coventry | 7 | -8 | 6 |
| 18 | Fulham | 7 | -3 | 5 |
| 19 | Nott. Forest | 7 | -4 | 5 |
| 20 | Sunderland | 7 | -8 | 4 |
