Þriggja ára samningur
Varnarmaðurinn Bergsveinn Ólafsson hefur yfirgefið uppeldisfélag sitt Fjölni og skrifað undir samning við Íslandsmeistara FH en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í Kaplakrika sem nú stendur yfir.
Samningurinn er til þriggja ára.
Samningurinn er til þriggja ára.
Bergsveinn var fyrirliði Fjölnis en samningur hans við Grafarvogsfélagið var að renna út og FH fékk leyfi til að fara í viðræður við hann.
Bergsveinn hefur mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur en hann lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk Fjölnis 2010. Síðan þá hefur hann leikið 116 leiki fyrir Fjölni í deild og bikar.
Hann er fæddur 1992 og hefur undanfarin tvö ár verið talinn í hópi bestu miðvarða Pepsi-deildarinnar.
„Ég þarf bara að hugsa út í hvað er best fyrir sjálfan mig. Ég muna gera það í rólegheitum," sagði Bergsveinn í viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolti.net síðasta laugardag.
Viðtal við Bergsvein kemur inn á Fótbolta.net á eftir.
Athugasemdir