Birkir Bjarnason, leikmaður landsliðsins, er spenntur fyrir komandi verkefnum liðsins gegn Lettum og Tyrkjum.
Fótbolti.net sló á þráðinn hjá honum í dag og spurði hann út í komandi verkefni ásamt lífinu í Sviss þar sem hann spilar með Basel.
Fótbolti.net sló á þráðinn hjá honum í dag og spurði hann út í komandi verkefni ásamt lífinu í Sviss þar sem hann spilar með Basel.
„Mjög vel, þó að við séum komnir áfram þá eru þetta gríðarlega mikilvægir leikir, við erum að hugsa um FIFA listann og við viljum vinna þessa leiki."
Lettarnir láu mikið til baka í fyrri leiknum og tók sinn tíma að brjóta þá niður. Birkir býst við svipuðum leik.
„Ég held það, þeir bera virðingu fyrir okkur, þó það sé ekki mikið undir hjá liðunum þá býst ég við að þetta verði svipaður leikur."
Birki líkar lífið í Sviss mjög vel enda hefur gengið vel hjá honum.
„Ég er mjög ángæður, ég hef byrjað mjög vel."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir