banner
   fim 08. október 2015 15:35
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið U21 landsliðsins - Fylgst með á Twitter
Frederik Schram er í markinu þar sem Rúnar Alex Rúnarsson er meiddur.
Frederik Schram er í markinu þar sem Rúnar Alex Rúnarsson er meiddur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hér að neðan má sjá byrjunarlið íslenska U21-landsliðsins sem er að fara að keppa gegn Úkraínu ytra klukkan 16:00 að íslenskum tíma.

Fylgst verður með gangi mála í leiknum á heimasvæði Fótbolta.net á Twitter.

Íslensku strákarnir eru á toppi riðilsins eftir þrjá leiki en þetta er fyrsti útileikur liðsins í riðlinum.

Úkraína hefur aðeins leikið einn leik og tapaðist hann 1-0 fyrir Makedóníu en Ísland vann Makedóníu 3-0 á Vodafone vellinum í opnunarleik riðilsins í júní síðastliðnum, vann svo Frakkland 3-2 og gerði svo 1-1 jafntefli heima gegn Norður-Írlandi.

Byrjunarlið Íslands:
1. Frederik Schram (m)
2. Adam Örn Arnarson
3. Oliver Sigurjónsson (f)
4. Orri Sigurður Ómarsson
5. Hjörtur Hermannsson
6. Böðvar Böðvarsson
7. Höskuldur Gunnlaugsson
8. Sindri Björnsson
9. Elías Már Ómarsson
10. Aron Elís Þrándarson
11. Ævar Ingi Jóhannesson
Athugasemdir
banner
banner
banner