Douglas Costa segir það ekki vera hlutverk sitt að fylla skarð Neymar en brasilíska landsliðið mætir Síle í kvöld í undankeppni HM í Rússlandi.
Neymar tekur út leikbann eftir Suður-Ameríkubikarinn í sumar og horfa margir Brasilíumenn til Douglas Costa að fylla skarð Neymar en Costa hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með Bayern Munchen í vetur.
„Ég er ekki hinn nýi Neymar og ég þarf ekki að fylla hans skarð."
„Það getur enginn komið í stað Neymar. Það sem ég verð að gera er að sinna mínu hlutverki og skipunum þjálfarans eins vel og ég get."
„Öll lið í heiminum myndu sakna hans en við verðum að komast yfir það," sagði Costa ákveðinn.
Athugasemdir