Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir því að engum flygildum, drónum, verði flogið yfir Laugardalsvöll á laugardag í tengslum við leik Íslands og Lettlands.
Þetta eru sömu tilmæli og komu fyrir leikinn gegn Kasakstan í síðasta mánuði.
Þetta eru sömu tilmæli og komu fyrir leikinn gegn Kasakstan í síðasta mánuði.
Tilkynning frá lögreglu:
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sett fram þau tilmæli að flygildum verði ekki flogið í Laugardalnum laugardaginn 10. október, frá kl. 12 til 24, en sama dag mætast Ísland og Lettland í undankeppni EM.
Nánar tiltekið er um að ræða knattspyrnuleikvanginn og 500 metra radíus í kringum hann. Þetta er gert til að gæta öryggis áhorfenda og leikmanna, en beiðni þess efnis barst lögreglu frá Knattspyrnusambandi Íslands.
Athugasemdir