Siðanefnd FIFA hefur ákveðið að banna Sepp Blatter, Jerome Valcke og Michel Platini frá afskiptum af fótbolta næstu 90 dagana. Blatter er forseti FIFA, Valcke er framkvæmdastjóri FIFA og Platini er forseti UEFA.
Þá hefur Chung Mong-joon, fyrrum varaforseti FIFA, verið dæmdur í sex ára bann frá afskiptum af fótbolta.
Þá hefur Chung Mong-joon, fyrrum varaforseti FIFA, verið dæmdur í sex ára bann frá afskiptum af fótbolta.
Blatter er sakaður um svind og svínarí kringum sölu á sjónvarpsrétti sem hafi verið gegn hagsmunum FIFA. Þá er hann sakaður um að hafa greitt Michel Platini 1,3 milljónir punda en hann og Platini hafa báðir neitað fyrir það að hafa haft rangt við.
Siðanefndin telur að það séu of erfiðar kringumstæður að Blatter sé enn við störf meðan á rannsókn stendur og að það sé mjög neikvætt fyrir fótboltann í heiminum.
Blatter hefur verið æðsti maður heimsfótboltans í 17 ár en í maí á þessu ári færðist fjör í leikinn þegar 14 háttsettir aðilar innan FIFA voru hanteknir og yfirheyrðir vegna ásakana um víðtæka spillingu.
Blatter verður í banni þar til í janúar á næsta ári en nýr forseti FIFA verður kjörinn í febrúar. Þar ætlar Platini að vera einn af þeim sem bjóða sig fram sem forseti.
Athugasemdir