Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fim 08. október 2015 14:00
Magnús Már Einarsson
Gary McAllister og O'Driscoll fara frá Liverpool
Gary McAllister.
Gary McAllister.
Mynd: Getty Images
Breytingar verða á þjálfarateymi Liverpool þegar Jurgen Klopp tekur við liðinu.

Reiknað er með að Klopp verði kynntur sem nýr stjóri í dag eða á morgun.

Gary McAllister mun missa starf sitt sem þjálfari aðalliðsins samkvæmt frétt Sky.

Sean O'Driscoll, sem var aðstoðarstjóri með Brendan Rodgers, mun einnig missa starfið.

Klopp vonast til að fá Zeljko Buvac og Peter Krawietz með sér í þjálfaralið Liverpool en þeir störfuðu með honum hjá Dortmund.
Athugasemdir
banner
banner
banner