Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. október 2015 11:55
Magnús Már Einarsson
Heimir Guðjóns áfram með FH (Staðfest)
Heimir Guðjónsson.
Heimir Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson verður áfram þjálfari Íslandsmeistara FH á næsta tímabili.

Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar, staðfesti þetta á fréttamannafundi í Kaplakrika í dag en þar var Bergsveinn Ólafsson kynntur til sögunnar sem nýr leikmaður FH.

Heimir stýrði FH til sigurs í Pepsi-deildinni í sumar og var valinn þjálfari ársins að mati Fótbolta.net.

Í viðtölum undanfarið hefur Heimir sagt að hann búist við að vera áfram í Hafnarfirði og nú hefur það verið staðfest.

Heimir hefur stýrt FH frá því haustið 2007 en hann var áður leikmaður og aðstoðarþjálfari hjá félaginu.

Þá var einnig staðfest í dag að markaskorarinn Atli Viðar Björnsson muni leika áfram með FH næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner