Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. október 2015 19:58
Magnús Már Einarsson
Jurgen Klopp tekinn við Liverpool (Staðfest)
Klopp við undirskriftina í kvöld.
Klopp við undirskriftina í kvöld.
Mynd: Liverpool
Jurgen Klopp er nýr knattspyrnustjóri Liverpool en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í kvöld.

Klopp tekur við Liverpool af Brendan Rodgers sem var rekinn um síðustu helgi. Klopp mætti til Liverpool borgar í dag og skrifaði undir í kvöld.

Hinn 48 ára gamli Klopp hefur verið í fríi frá fótbolta síðan hann hætti störfum hjá Borussia Dortmund í vor.

Klopp kom til Dortmund frá Mainz árið 2008 en liðið varð tvívegis þýskur meistari undir hans stjórn og fór í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2013.

Fyrsti leikur Liverpool undir stjórn Klopp verður gegn Tottenham annan laugardag.

Klopp verður formlega kynntur til sögunnar á fréttamannafundi klukkan 9 í fyrramálið en þá mun hann tjá sig um nýja starfið.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner