Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
   fim 08. október 2015 14:30
Elvar Geir Magnússon
Laugi: Það koma fleiri tilkynningar frá okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Baldursson, aðstoðarþjálfari FH, segir fagnaðarefni að félagið hafi náð að krækja í miðvörðinn Bergsvein Ólafsson frá Fjölni. KR-ingar voru einnig að reyna að fá leikmanninn sem valdi FH fram yfir.

„Bergsveinn er góður leikmaður og frábær karakter, hann hefur staðið sig vel síðustu ár í Fjölni. Við höfum litið til þessa leikmanns, hann stóð sig mjög vel í sumar og vakti verðskuldaða athygli. Við tókum eftir honum eins og eflaust fleiri og erum virkilega ánægðir með að hafa fengið hann til okkar," segir Guðlaugur.

Fleiri frétta er að vænta úr herbúðum FH.

„Við skoðum í kringum okkur og skoðum hvað við viljum gera. Þetta verða ekki síðustu tilkynningarnar frá okkur fyrir næsta tímabil. Það er alveg klárt."

Kassim Doumbia og Brynjar Ásgeir Guðmundsson eru að verða samningslausir og hafa ekki skrifað undir nýja samninga. Guðlaugur segir að viðræður séu í gangi við þá og vonast til að halda þeim.

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.

Sjá einnig:
Viðtal við Bergsvein Ólafsson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner