Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. október 2015 16:21
Magnús Már Einarsson
Marco Amelia til Chelsea (Staðfest)
Marco Amelia.
Marco Amelia.
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur samið við ítalska markvörðinn Marco Amelia en hann hefur æft með liðinu að undanförnu.

Hinn 33 ára gamli Amelia spilaði með Perugia í Serie B á síðasta tímabili.

Amelia var samningslaus og því gat hann samið við Chelsea þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.

Amelia var á sínum tíma á mála hjá AC Milan en hann hefur einnig leikið með Palermo, Livorno og Genoa á ferli sínum.

Chelsea hefur verið í leit að markverði þar sem Thibaut Courtois verður frá keppni næstu mánuðina. Auk Amelia er Chelsea með þá Asmir Begovic og Jamal Blackman innan sinna raða.
Athugasemdir
banner
banner
banner