Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 08. október 2015 08:30
Arnar Geir Halldórsson
Umboðsmaður: Coutinho rosalega ánægður hjá Liverpool
Hamingjusamur
Hamingjusamur
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Coutinho, hinn umdeildi Kia Joorabchian, segir ekkert til í þeim sögusögnum að skjólstæðingur sinn vilji yfirgefa Liverpool.

Coutinho hefur verið orðaður við brottför frá Liverpool og hafa Real Madrid og Barcelona verið nefnd til sögunnar sem vænlegur áfangastaður.

„Philippe (Coutinho) er rosalega ánægður hjá Liverpool. Hann skrifaði undir langtímasamning við félagið sem segir allt um metnað hans og tilfinningar til Liverpool."

„Þær fréttir að ég hafi verið að tala við Real Madrid um Philippe eru ekki sannar. Hann ætlar að gera allt sem hann getur til að hjálpa Liverpool að komast í Meistaradeildina og vinna titla. Það er það eina sem hann er að einbeita sér að."
sagði Joorabchian.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner