Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. desember 2016 14:09
Elvar Geir Magnússon
De Bruyne bað unnustu sinnar undir Eiffel-turninum
Hún sagði já!
Hún sagði já!
Mynd: Instagram
Belgíski landsliðsmaðurinn Kevin De Bruyne hjá Manchester City bað unnustu sinnar við Eiffel-turninn í París, borg ástarinnar.

Hún sagði já!

Stuttu eftir 1-1 jafntefli City gegn Celtic fór De Bruyne og unnustan, Michele Lacroix, til Parísar þar sem þau eyddu saman afmælisdegi hennar.

De Bruyne sagði frá bónorðinu á Instagram.

„Til hamingju með afmælið til framtíðar eiginkonu minnar. Hún sagði já," skrifaði De Bruyne.

Þau skötuhjú eignuðust sitt fyrsta barn í mars þegar sonurinn Mason kom í heiminn.

De Bruyne er í hópi bestu fótboltamanna heims í dag en hann hefur verið lykilhlekkur hjá City á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner