Jose Fonte, leikmaður Southampton og portúgalska landsliðsins neitar þeim sögusögnum um að hann hafi hafnað samningstilboði frá félaginu þar sem hann hefur ekki fengið slíkt í hendurnar.
Portúgalinn á 18 mánuði eftir af samningi sínum við félagið og býst hann ekki við að fá nýtt tilboð áður en samningurinn rennur út.
„Ég hafnaði aldrei nýjum samning. Ég hef fengið það staðfest frá Southampton að þeir ætla ekki að bjóða mér nýjan samning. Ég einbeiti mér nú að leiknum gegn Beer Sheva í Evrópudeildinni." Þetta skrifaði hann á Instagram síðu sína.
Fonte staðfestir jafnframt að honum hafi verið boðin launahækkun í sumar sem hann hafnaði.
„Ég fékk tilboð í sumar sem ég hafnaði. Þeir buðu mér launahækkun, ekki nýjan samning," sagði Fonte.
Athugasemdir