Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 08. desember 2016 08:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mamma Aubameyang: Sonur minn talaði alltaf um Real Madrid
Aubameyang gæti farið til Real Madrid.
Aubameyang gæti farið til Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Móðir Pierre-Emerick Aubameyang, framherja Dortmund, segir að draumur sonar síns hafi alltaf verið að spila með Real Madrid.

Hann er með samning við þýska félagið til 2020 en hann hefur áður lýst yfir áhuga sínum með að spila fyrir Real.

Framherjinn hefur einnig verið orðaður við Barcelona en ef hann fengi val um spænsku risana segir móðir hans að valið yrði auðvelt.

„Hann lofaði afa sínum að hann myndi spila með Real Madrid og síðan hann var lítill talaði hann alltaf um Real Madrid, ekki Barcelona. Fjölskyldan hefur alltaf haldið með Real og það væri frábært að sjá hann í hvítu," sagði móðir hans.
Athugasemdir
banner
banner