Manchester United er komið áfram í 32 liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir 2-0 sigur á Zorya í Úkraínu í kvöld. Henrikh Mkhitaryan kom þeim yfir með ansi góðu marki í seinni hálfleik en það var fyrsta markið hans fyrir félagið, en hann segist hafa beðið eftir þessari stund.
„Ég var búinn að bíða lengi eftir þessu," sagði Armeninn í viðtali við BT Sport.
„Fyrri hálfleikurinn var erfiður því við gátum ekki náð þessari úrslita sendingu en í síðari hálfleik bjuggum við til pláss fyrir vængmennina og sóknarmennina," bætti Mkhitaryan við en eftir að hafa loksins brotið ísinn horfir hann til heimavöllsins í Manchester.
„Næsta markið mitt verður að koma á Old Trafford því að mig langar að skora á heimavelli."
Athugasemdir