Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. desember 2016 13:30
Elvar Geir Magnússon
Suarez framlengir við Barcelona - Jólagjöf
Luis Suarez, sóknarmaður Barcelona.
Luis Suarez, sóknarmaður Barcelona.
Mynd: Getty Images
Úrúgvæski sóknarmaðurinn Luis Suarez mun skrifa undir nýjan samning við Barcelona og mun líklega klára feril sinn á Nývangi.

Hann er að fara að binda sig hjá félaginu til 2022, þegar hann verður 34 ára.

Josep Bartomeu, forseti Barcelona, segir að samningurinn sé tilbúinn.

„Suarez mun framlengja. Það á bara eftir að ganga frá smáatriðum. Við munum tilkynna þegar þetta er í höfn á næstu dögum eða vikum," segir Bartomeu.

„Þetta er risastór jólagjöf fyrir stuðningsmenn okkar. Í augum þeirra er hann gríðarlega mikilvægur karakter sem er hluti af hinu ótrúlega sóknartríói sem við höfum hjá félaginu."
Athugasemdir
banner
banner
banner