fim 08. desember 2016 17:11
Elvar Geir Magnússon
Viðar byrjar gegn Dundalk - Hjálpar hann Maccabi áfram?
Skorar Viðar gegn Dundalk?
Skorar Viðar gegn Dundalk?
Mynd: Getty Images
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson er í byrjunarliði ísraelska liðsins Maccabi Tel Aviv sem mætir Dundalk í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Leikurinn, sem er í D-riðli, hefst klukkan 18 og er fylgst með gangi mála í úrslitaþjónustu á forsíðu.

Til að komast áfram úr riðlinum þarf Maccabi að vinna og treysta á að AZ Alkmaar nái ekki að vinna Zenit frá Pétursborg í leik sem fram fer á sama tíma.

Viðar er í fremstu víglínu Maccabi en Dundalk er frá Írlandi og sló Íslandsmeistara FH út í undankeppninni eins og margir muna eftir.

Arnór Ingvi Traustason er ekki í leikmannahópi Rapid Vín sem mætir Athletic Bilbao klukkan 18 í F-riðli en Rapid á ekki möguleika á að komast áfram.
Athugasemdir
banner
banner
banner