Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 09. janúar 2017 13:42
Magnús Már Einarsson
Coutinho snýr aftur í lið Liverpool á miðvikudaginn
Coutinho verður með á morgun.
Coutinho verður með á morgun.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, staðfesti í dag að Philippe Coutinho verði í leikmannahópnum gegn Southampton á miðvikudag í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins.

Coutinho hefur ekkert spilað með Liverpool síðan hann meiddist á ökkla gegn Sunderland í lok nóvember.

James Milner og Jordan Henderson eru einnig báðir klárir í slaginn eftir meiðsli. Joel Matip mætti einnig á sína fyrstu æfingu í dag síðan hann meiddist 11. desember.

Þetta eru góð tíðindi fyrir Liverpool en liðið mætir Southampton í deildabikarnum á miðvikudag og á sunnudag fer liðið á Old Trafford og mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

Klopp staðfesti einnig í dag að Loris Karius verði mjög líklega í markinu í leiknum á miðvikudag líkt og gegn Plymouth í enska bikarnum í gær.
Athugasemdir
banner
banner