„Það er ótrúlegt að sjá hversu stórt þetta er," sagði Helgi Kolviðsson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, eftir komu liðsins til Kína.
Ísland er að fara að taka þátt í æfingamóti í Kína en fyrri leikurinn í mótinu er gegn heimamönnum í Kína á morgun. Hinn reyndi Marcelo Lippi tók við kínverska landsliðinu í október en Helgi segir að erfitt sé að leikgreina andstæðingana fyrir leikinn á morgun.
„Við erum búnir að skoða þá svolítið mikið en þjálfarinn er bara búinn að vera með liðið í einn leik og hann gerði talsverðar breytingar í fyrsta leik."
„Í hópnum núna er einn leikmaður frá því í síðasta leik. Hann er að prófa mikið af ungum strákum sem við þekkjum lítið. Við þurftum að skoða mikið í þetta skipti til að fá upplýsingar um hvern einasta leikmann. Það tók sinn tíma."
Óskar Örn Guðbrandsson, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, tók viðtalið en það má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir