Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   þri 09. febrúar 2016 14:30
Elvar Geir Magnússon
Patrice Evra sagði Martial að fara til Man Utd
Martial hefur skemmt áhorfendum í vetur.
Martial hefur skemmt áhorfendum í vetur.
Mynd: Getty Images
Parice Evra bjó í sama bæ og Anthony Martial í Frakklandi. Martial segir að Evra sem er fyrrum leikmaður Manchester United hafi sannfært sig um að rétta skrefið fyrir sig væri að fara í Manchester United.

Hefð er fyrir Frökkum í stóru hlutverki hjá Manchester United.

„Eric Cantona er svo sannarlega goðsögn hérna og var magnaður leikmaður. Svo ertu með Pat Evra sem talaði mikið við mig áður en ég kom hingað," segir Martial.

„Hann hafði bara góða hluti að segja um félagið. Hann sagði að þetta væri félag meistara, félag þar sem allir vilja vinna og ég hef svo sannarlega kynnst því."

Martial hefur skorað níu mörk á sínu fyrsta tímabili á Old Trafford og er klárlega einn ljósasti punktur á tímabili United.
Athugasemdir
banner
banner
banner