Wanyama með besta markið
Mohamed Salah leikmaður Liverpool hefur verið valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni.
Salah er kominn með 24 mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Í febrúar skoraði hann fjögur mörk og lagði upp tvö til viðbótar í þremur leikjum.
Salah er kominn með 24 mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Í febrúar skoraði hann fjögur mörk og lagði upp tvö til viðbótar í þremur leikjum.
Chris Hughton, stjóri Brighton, var valinn stjóri mánaðarins en liðið vann tvo leiki og gerði eitt jafntefli í febrúar. Nýliðarnir eru í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í augnablikinu.
Victor Wanyama, miðjumaður Tottenham, var síðan verðlaunaður fyrir mark mánaðarins en hann skoraði með þrumufleyg í 2-2 jafntefli gegn Liverpool í byrjun febrúar.
"It is nice to win it again"@22mosalah on his 2nd @EASPORTSFIFA Player of the Month award of the season: https://t.co/8ahOs8SaWx#PLAwards pic.twitter.com/ue9Gqi7Wml
— Premier League (@premierleague) March 9, 2018
Athugasemdir