Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   mán 09. apríl 2018 23:29
Egill Sigfússon
Birkir Már: Heill heilsu og klár í HM
Birkir Már spilaði allan leikinn í dag
Birkir Már spilaði allan leikinn í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur sigraði Grindavík 4-2 í kvöld og tóku gullverðlaun í Lengjubikarnum 2018 í fjörugum leik.

Landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson spilaði allann leikinn í þriggja manna hafsentalínu Valsmanna. Birki fannst þeir hafa stjórn á leiknum og hafði litlar áhyggjur af því að vinna ekki í dag.

„Mér fannst við hafa þokkalega stjórn á þessu, þeir fengu smá kafla þarna og skoruðu mark sem var mjög vel gert hjá þeim og svo drápum við þetta eiginlega bara strax með að skora aftur."

Birkir er að spila í nýrri stöðu, hægra megin í þriggja manna hafsentalínu og lýst bara vel á þá stöðu þó hann fái ekki að keyra alveg jafn mikið upp og hann er vanur.

„Þetta er bara skemmtilegt, kannski aðeins minna sóknarlega en ég er vanur en maður venst öllu og við getum skipt yfir í 4-3-3 og þá spila ég í hægri bakverði og ekkert mál."

Birkir er eins og flestir vita á leið á HM með Íslenska landsliðinu og hefur verið byrjunarliðsmaður í liðinu í mörg ár. Hann kveðst vera alveg heill heilsu og tilbúinn í HM í Rússlandi.

„Ég er orðinn heill heilsu sem betur fer, er búinn að æfa vel í einhverja tvo mánuði og kominn í gott stand og það var fínt að fá landsleikinn sem ég fékk í mars til að sýna að ég er kominn í ágætis stand."
Athugasemdir
banner