Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 09. apríl 2018 23:30
Elvar Geir Magnússon
Færeyjum
Ingibjörg: Færeyska gervigrasið geggjað
Icelandair
Ingibjörg á æfingu í Þórshöfn.
Ingibjörg á æfingu í Þórshöfn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið tók í dag lokaæfingu fyrir landsleikinn gegn Færeyjum sem verður hér í Þórshöfn á morgun. Eftir æfinguna ræddi varnarmaðurinn Ingibjörg Sigurðardóttir við Fótbolta.net.

Hvernig tókst æfingin til?

„Hún byrjaði brösuglega en við komumst í gírinn í lokin og erum komnar með þetta núna. Leikurinn á morgun er mikilvægur fyrir okkur til að verða betri og þróa okkar leik," segir Ingibjörg.

Færeyska liðið er með markatöluna 0-32 eftir fyrstu fjóra leiki sína í riðlinum. Liðið hefur enn ekki náð að skora mark. Geta varnarmennirnir eitthvað slakað á?

„Nei, við fáum kannski stærra hlutverk á öðrum stöðum á vellinum. Við megum ekki missa fókus því þær eru með fína fótboltamenn sem geta refsað."

„Við þurfum að horfa á þennan leik að nota hann til að verða betri sem lið og þróa leikfræðina og þannig. Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir okkur."

Ingibjörg er ánægð með gervigrasið í Þórshöfn og segir að það gefi liðinu tækifæri á að hafa hátt tempó í sendingum.

„Þetta er bara geggjað gras og aðstæðurnar eru geggjaðar."

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner