Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
   fim 09. maí 2024 21:45
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: Haukar skoruðu sex gegn Fjölni - Augnablik vann Vestra
Haukar byrja af krafti
Haukar byrja af krafti
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Augnablik skoraði þrjú gegn Vestra
Augnablik skoraði þrjú gegn Vestra
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Augnablik og Haukar unnu sannfærandi sigra í 2. deild kvenna í kvöld.

Augnablik vann nýliða Vestra, 3-0, á Kópavogsvelli. Ágústa Þyri Andersen Willumsdóttir kom Blikum á bragðið með fyrsta marki sínu í deildarkeppni á Íslandi.

Ágústa er fædd árið 2007 og er systir þeirra Brynjólfs og Willums, sem spila fyrir Kristiansund og Go Ahead Eagles, en faðir þeirra er fyrrum fótboltamaðurinn og þjálfarinn Willum Þór Þórsson, sem starfar í dag sem heilbrigðisráðherra.

Guðrún Þórarinsdóttir bætti við forystu Augnabliks áður en hálfleikurinn var úti og þá gerði Viktoría Fjóla Sigurjónsdóttir þriðja markið snemma í síðari hálfleik. Guðrún er fædd 2008 og Viktoría árið 2007.

Góður 3-0 sigur Augnabliks í fyrsta leik en Vestri var að tapa öðrum leik sínum.

Haukar áttu dúndurbyrjun en liðið vann 6-3 sigur á Fjölni á BIRTU-vellinum á Ásvöllum.

Edda Mjöll Karlsdóttir og Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir skoruðu báðar tvö mörk fyrir heimakonur. Glódís María Gunnarsdóttir og Kristín Fjóla Sigþórsdóttir skoruðu einnig.

Anna María Bergþórsdóttir og Júlía Katrín Baldvinsdóttir skoruðu fyrir Fjölni, en eitt mark Fjölnis var skráð sjálfsmark á Brynju Dögg Benediktsdóttur.

Úrslit og markaskorarar:

Augnablik 3 - 0 Vestri
1-0 Ágústa Þ Andersen Willumsdóttir ('30 )
2-0 Guðrún Þórarinsdóttir ('44 )
3-0 Viktoría Fjóla Sigurjónsdóttir ('54 )

Haukar 6 - 3 Fjölnir
1-0 Edda Mjöll Karlsdóttir ('9 )
2-0 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('20 )
3-0 Glódís María Gunnarsdóttir ('27 )
3-1 Júlía Katrín Baldvinsdóttir ('31 )
3-2 Brynja Dögg Benediktsdóttir ('57 , Sjálfsmark)
4-2 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('63 )
5-2 Kristín Fjóla Sigþórsdóttir ('72 )
6-2 Edda Mjöll Karlsdóttir ('74 )
6-3 Anna María Bergþórsdóttir ('85 )
2. deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 3 3 0 0 14 - 1 +13 9
2.    ÍH 2 2 0 0 12 - 1 +11 6
3.    Völsungur 2 2 0 0 12 - 1 +11 6
4.    Haukar 1 1 0 0 6 - 3 +3 3
5.    Augnablik 2 1 0 1 3 - 1 +2 3
6.    KH 2 1 0 1 1 - 1 0 3
7.    Einherji 2 1 0 1 1 - 2 -1 3
8.    Fjölnir 2 1 0 1 5 - 7 -2 3
9.    Sindri 2 1 0 1 3 - 11 -8 3
10.    Álftanes 2 0 0 2 2 - 4 -2 0
11.    Dalvík/Reynir 1 0 0 1 1 - 7 -6 0
12.    Smári 2 0 0 2 2 - 11 -9 0
13.    Vestri 3 0 0 3 0 - 12 -12 0
Athugasemdir
banner
banner
banner