Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   fim 09. maí 2024 16:30
Elvar Geir Magnússon
Boehly segir að áætlanir Chelsea séu farnar að bera ávöxt
Boehly í heiðursstúkunni á Stamford Bridge.
Boehly í heiðursstúkunni á Stamford Bridge.
Mynd: Getty Images
Todd Boehly eigandi og stjórnarformaður Chelsea segir að gengi liðsins að undanförnu sé sönnun þess að áætlanir liðsins séu að ganga upp undir stjórn Mauricio Pochettino.

Chelsea er ósigrað í síðustu þremur leikjum, liðið vann West Ham og Tottenham eftir jafntefli gegn Aston Villa.

Chelsea hefur náð að klifra upp í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem gæti gefið þátttökurétt í Evrópukeppni. Liðið er aðeins tveimur stigum á eftir Newcastle sem er í sjötta sæti.

Boehly var sakaður um að gera félagið að aðhlátursefni en Bandaríkjamaðurinn segir að áætlanir séu farnar að bera ávöxt.

„Við höfum spilað fallegan fótbolta í síðustu leikjum. Flæðið var svo gott og þetta var alveg eins og við viljum sjá liðið spila. Hlutirnir eru að falla saman hjá okkur og það hefur sést í síðustu leikjum," sagði Boehly á íþróttaráðstefnu í Los Angeles í gær.

Framtíð Pochettino hefur verið talsvert í umræðunni en næsti leikur Chelsea er gegn Nottingham Forest á laugardag, áður en liðið ferðast til Brighton og tekur á móti Bournemouth í lokaumferðinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 38 28 7 3 96 34 +62 91
2 Arsenal 38 28 5 5 91 29 +62 89
3 Liverpool 38 24 10 4 86 41 +45 82
4 Aston Villa 38 20 8 10 76 61 +15 68
5 Tottenham 38 20 6 12 74 61 +13 66
6 Chelsea 38 18 9 11 77 63 +14 63
7 Newcastle 38 18 6 14 85 62 +23 60
8 Man Utd 38 18 6 14 57 58 -1 60
9 West Ham 38 14 10 14 60 74 -14 52
10 Crystal Palace 38 13 10 15 57 58 -1 49
11 Brighton 38 12 12 14 55 62 -7 48
12 Bournemouth 38 13 9 16 54 67 -13 48
13 Fulham 38 13 8 17 55 61 -6 47
14 Wolves 38 13 7 18 50 65 -15 46
15 Everton 38 13 9 16 40 51 -11 40
16 Brentford 38 10 9 19 56 65 -9 39
17 Nott. Forest 38 9 9 20 49 67 -18 32
18 Luton 38 6 8 24 52 85 -33 26
19 Burnley 38 5 9 24 41 78 -37 24
20 Sheffield Utd 38 3 7 28 35 104 -69 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner