Logi Tómasson og hans menn í Strömsgodset eru úr leik í norska bikarnum eftir svekkjandi 4-3 tap gegn Lilleström í 16-liða úrslitum bikarsins í kvöld.
Strömsgodset lenti tveimur mörkum undir í leiknum áður en Logi lagði upp fyrsta mark heimamanna. Önnur stoðsending hans á tímabilinu.
Lilleström komst aftur í tveggja marka forystu undir lok hálfleiksins en Strömsgodset svaraði í uppbótartímanum.
Þegar tuttugu mínútur voru eftir jöfnuðu heimamenn og komu sér áfram í framlengingu.
Þremur mínútum fyrir lok framlengingar skoraði Lilleström sigurmarkið og kom sér áfram í 8-liða úrslit.
Gríðarlega svekkjandi fyrir Loga og hans menn. Nú er aðeins einn Íslendingur eftir í bikarnum en það er Júlíus Magnússon og félagar í Fredrikstad.
Athugasemdir