Meiðslahrina landsleikjahlésins heldur áfram en margir af helstu leikmönnum Evrópu hafa meiðst í landsleikjum vikunnar.
Landsleikjahléið virðist ætla að leika Manuel Pellegrini, stjóra Man City, grátt en eins og áður hefur verið greint frá þurfti Sergio Aguero að fara af velli í fyrri hálfleik þegar Argentína tapaði 2-0 fyrir Ekvador í gær.
Líklegt er talið að Aguero verði frá í mánuð vegna meiðslanna sem þýðir að hann mun missa af grannaslagnum gegn Man Utd þann 25.október næstkomandi.
Til að bæta gráu ofan á svart var David Silva skipt af velli eftir tíu mínútur vegna meiðsla í leik Spánverja gegn Lúxemborg sem nú stendur yfir. Silva fékk högg á ökklann en óvíst er hvort um alvarleg meiðsli sé að ræða.
Alvaro Morata var svo tekinn af velli eftir hálftíma í sama leik en auk þessara leikmanna urðu Karim Benzema og Mario Götze fyrir meiðslum í gær sem munu halda þeim frá fótboltaiðkun í einhvern tíma.
Athugasemdir