Mario Götze gæti verið búinn að leika sinn síðasta fótboltaleik á þessu ári eftir að hafa farið meiddur af velli þegar Þýskaland tapaði fyrir Írlandi í undankeppni EM í gær.
Honum var skipt útaf eftir rúmlega hálftíma leik og inn í hans stað kom Andre Schurrle.
Götze er meiddur á nára og samkvæmt upplýsingum frá læknum þýska landsliðsins gæti hann verið frá í tíu til tólf vikur hið minnsta.
Þessi 23 ára gamli sóknarsinnaði miðjumaður hefur verið í lykilhlutverki hjá sjóðheitu liði Bayern Munchen í upphafi leiktíðar en hann mun meðal annars missa af leik liðsins gegn Arsenal þann 20.október næstkomandi.
Athugasemdir