Indriði Sigurðsson verður kynntur sem nýr leikmaður KR í dag samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
KR hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 15:00 þar sem Indriði verður kynntur til sögunnar.
KR hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 15:00 þar sem Indriði verður kynntur til sögunnar.
Indriði er uppalinn KR-ingur en hann hefur leikið í atvinnumennsku erlendis síðan árið 1999.
Samningur Indriða við norska félagið Viking rennur út í lok árs og hann hefur ákveðið að snúa heim.
Indriði, sem verður 34 ára á mánudaginn, hefur einnig leikið með Lyn og Lilleström í Noregi sem og Genk í Belgíu.
Þá hefur Indriði skorað tvö mörk í 65 leikjum með A-landsliði Íslands á ferli sínum.
Athugasemdir