banner
   fös 09. október 2015 09:12
Magnús Már Einarsson
Klopp: Mesti heiður sem ég veit um
Mynd: Getty Images
„Ég er kominn aftur í slaginn og þetta er mesti heiður sem ég get ímyndað mér að vera hér," sagði Jurgen Klopp á fréttamannafundi nú rétt í þessu þegar hann var kynntur sem nýr stjóri Liverpool.

„Þetta er sérstakt tilboð. Ég stýrði Mainz og Borussia Dortmund sem eru sérstök félög og það er frábært næsta skref að koma hingað og reyna að hjálpa til."

„Ástríða í fótboltanum og hvernig fólk lifir fyrir fótboltann í Liverpool....Þetta er ekki venjulegt félag, þetta er sérstakt félag. Þetta starf er fullkomið næsta skref fyrir mig."


Klopp er að snúa aftur í fótboltann eftir að hafa hætt hjá Dortmund síðastliðið vor. „Ég er fullkomlega afslappaður. Ég var í fjögurra mánaða fríi og ég er í mínu besta formi," sagði Klopp.

Frekari fréttir af fréttamannafundinum koma innan tíðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner