Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 09. desember 2012 15:44
Hafliði Breiðfjörð
Joe Hart stöðvaði stuðningsmann sem ætlaði að vaða í Rio
Það sauð allt uppúr í lok leiks Manchester City og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag og stuðningsmenn City liðsins urðu brjálaðir.

Robin van Persie skoraði sigurmark Manchester United beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma og Rio Ferdinand fagnaði markinu fyrir framan stuðningsmenn City.

Þeir brugðust reiðir við og pening var hent í andlit Ferdinand sem varð blóðugur í andliti á eftir.

Mikil læti urðu eftir þetta og lögregla þurfti að hafa sig alla við að hemja stuðningsmenn Manchester City sem mörgum var mjög heitt í hamsi.

Einn þeirra komst framhjá löggæslunni og ætlaði að vaða í Ferdinand en þá kom Joe Hart markvörður City liðsins til skjalanna og stöðvaði stuðningsmanninn. Þetta atvik var ekki sýnt í sjónvarpi en má sjá vel á ljósmyndinni hér til hliðar og fyrir neðan.
Slapp
banner
banner