Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 09. desember 2014 18:08
Magnús Már Einarsson
Víðir Sig: Áhugamenn um íslenskan fótbolta leynast víða
Víðir með bókina góðu.
Víðir með bókina góðu.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
,,Bókin er í sama formi og í fyrra en þá stokkaði ég hana alveg upp," sagði Víðir Sigurðsson við Fótbolta.net í dag eftir að bók hans Íslenska knattspyrna 2014 kom út.

Fótboltasumarið á Íslandi var viðburðaríkt en Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti í karlaflokki eftir dramatískan sigur á FH í úrslitaleik um titilinn og liðið varð einnig meistari í kvennaflokki.

Íslenska karlalandsliðið hefur einnig byrjað frábærlega í undankeppni EM árið 2016. Víðir segir að það hafi verið skemmtilegt að búa bókina til í ár.

,,Það var með allra skemmtilegasta móti þetta árið. Ég sagði í fyrra að árið 2013 hefði verið eitt besta ár sem ég mundi eftir en ég held að 2014 hafi toppað það," sagði Víðir.

Það eru ekki bara íslenskir knattspyrnuáhugamenn sem kaupa bókina því Víðir sendir einnig eintök til aðdáenda erlendis.

,,Áhugamenn um íslenskan fótbolta leynast í Þýskalandi, Frakklandi, Englandi og víðar. Það eru fastakúnnar þar alltaf," sagði Víðir.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner