Ari Freyr Skúlason skoraði mark Lokeren er þeir gerðu 1-1 jafntefli við topplið Zulte-Waregem í belgísku úrvalsdeildinni í kvöld.
Zulte komst yfir á 31. mínútu en Ari Freyr jafnaði strax í byrjun seinni hálfleiks og þar við sat.
Sverrir Ingi Ingasson spilaði allan leikinn, eins og Ari en Rúnar Kristinsson þjálfar liðið.
Zulte er enn í toppsætinu en Club Brugge getur tekið það af þeim, takist þeim að vinna á morgun.
Lokeren er í 10. sæti með 19 stig.
Athugasemdir