Horsens 3 - 0 AaB
1-0 Kjartan Henry Finnbogason ('8 )
2-0 Kim Aabech ('51 )
3-0 Conor O'Brien ('70 )
1-0 Kjartan Henry Finnbogason ('8 )
2-0 Kim Aabech ('51 )
3-0 Conor O'Brien ('70 )
Hinn íslenski Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum þegar lið hans, Horsens, mætti AaB frá Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Horsens var tveimur stigum á eftir AaB fyrir leikinn, en þeir mættu hins vegar miklu grimmari til leiks og eftir átta mínútur skoraði Kjartan Henry fyrsta markið.
Staðan var 1-0 í hálfleik, en í seinni hálfleiknum bætti lið Horsens við tveimur mörkum og þar við sat. Kjartan Henry var tekinn af velli á 79. mínútu.
Lokatölur 3-0 fyrir Horsens og góður sigur þeirra staðreynd. Þeir eru nú með 27 stig í sjöunda sæti deildarinnar, en AaB er í sætinu fyrir neðan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir