Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 09. desember 2016 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: 101 Great Goals 
Draxler rekinn úr leikmannahópi Wolfsburg - Fer líklega í janúar
Draxler hefur væntanlega leikið sinn síðasta leik með Wolfsburg
Draxler hefur væntanlega leikið sinn síðasta leik með Wolfsburg
Mynd: Getty Images
Julian Draxler, leikmaður Wolfsburg, hefur verið vikið úr leikmannahópi liðsins og mun ekki mæta Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni á morgun. Það er þýska blaðið Bild sem greinir frá þessu.

Draxler sagðist á opinberum vettvangi vilja fara frá félaginu, en hann hefur oftar en einu sinni reynt að komast frá Wolfsburg og nú er félagið búið að fá nóg.

Samkvæmt þýskum fjölmiðlum eru miklar líkur á því að Draxler sé búinn að leika sinn síðasta leik fyrir Wolfsburg og er hann væntanlega á förum í janúar.

Arsenal og Bayern eru á meðal þeirra liða sem eru sögð áhugasöm um Draxler, en hann mun kosta 36 milljónir evra í janúarglugganum.

Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Wolfsburg sem er í miklum vandræðum í þýsku Bundesligunni. Liðið er í 15. sæti með tíu stig eftir skelfilega byrjun.
Athugasemdir
banner
banner