Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 09. desember 2016 07:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
„Eina vandamál Arsenal er að halda Özil og Sanchez"
David Seaman
David Seaman
Mynd: Getty Images
Fyrrum markmaður Arsenal, David Seaman, segir að eina vandamálið sem Arsenal glímir við þessa stundina er að halda í Mesut Özil og Alexis Sanchez en þeir eiga báðir eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við félagið.

Seaman býst við að Arsene Wenger sé að spara peninga til að halda þeim báðum hjá félaginu.

„Eina sem er að hjá Arsenal núna er að það gæti verið erfitt að halda Mesut Özil og Alexis Sanchez. Arsenal gæti sleppt því að kaupa leikmenn til að gefa þeim betri samning."

„Vonandi nær Arsenal að verða Englandsmeistari til að þagga niður í öllum," bætti hann við.
Athugasemdir
banner
banner