fös 09. desember 2016 09:49
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Mkhitaryan er með öflugt hugarfar
Mynd: Getty Images
„Hann er með öflugt hugarfar," sagði Jose Mourinho um Henrikh Mkhitaryan eftir að Armeninn skoraði fyrra mark Manchester United í 2-0 sigri á Zorya Luhansk í Evrópudeildinni í gær.

Mkhitaryan fékk mjög fá tækifæri í byrjun tímabils en hann hefur komið sterkur inn undanfarnar vikur. Í gær opnaði hann síðan markareikning sinn með Manchester United.

„Hann var mjög ákveðinn í að berjast þrátt fyrir að það hafi verið erfitt fyrir hann að aðlagast. Hann er að gera þetta á besta mögulegan hátt," sagði Mourinho.

„Hann hefur lagt hart að sér líkamlega og taktískt og við vitum að hæfileikarnir eru þarna. Við vissum hvaða hæfileika við vorum að kaupa."

„Hann barðist til að bæta sig taktíkst, hann barðist til að bæta sig líkamlega og núna er hann að spila vel í úrvalsdeildinni, vel í Evrópudeildinni og vel í deildabikarnum. Það geislar meiri gleði haf honum og ég er ánægður."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner