Jose Mourinho, stjóri Manchester United, vill sjá Wayne Rooney og fleiri sóknarmenn liðsins skora meira af mörkum.
Manchester United hefur skorað 19 mörk í fyrstu 14 leikjunum í ensku úrvalsdeildinni en eina mark Rooney kom gegn Bournemouth í fyrsta leik.
Manchester United hefur skorað 19 mörk í fyrstu 14 leikjunum í ensku úrvalsdeildinni en eina mark Rooney kom gegn Bournemouth í fyrsta leik.
„Í mínu liði er hanns sóknarmaður. Í landsliðinu er hann þeirra leikmaður en ekki minn. Þeir geta gert það sem þeir vilja. Ef þeir vilja spila honum í hægri bakverði þá geta þeir gert það. Það er ekki mitt vandamál," sagði Mourinho.
„Sem sóknarmaður skorar hann vanalega meira. Hann hefur skorað tvö mörk, gegn Fenerbahce og eitt í úrvalsdeildinni. Við búumst við fleiri mörkum frá honum, já, en við búumst við fleiri mörkum frá öllum í liðinu."
„Kannski er Zlatan undantekning þar á en hann er aðalframherjinn og þá er eðlilegt að hann skori fleiri mörk. Við búumst hins vegar við fleiri mörkum frá öllum hinum sóknarmönnunum."
Athugasemdir