Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 09. desember 2016 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ranieri: Þetta gerðist fyrir Chelsea á síðstu leiktíð
Claudio Ranieri
Claudio Ranieri
Mynd: Getty Images
„Við höfum ekki sýnt sömu baráttu og í fyrra. Hvernig er hægt að vinna án hennar? Bestu liðin geta ekki unnið án baráttu og hvað þá við. Við verðum að standa okkur betur og komast frá fallsætunum," sagði Claudio Ranieri, þjálfari Leicester á fréttamannafundi í gær.


Hann segir slæmt gengi Leicester á leiktíðinni ekki hafa komið sér á óvart en Leicester hefur ekki unnið deildarleik síðan

„Ég hef verið að bíða eftir gengi eins og þessu. Þetta gerðist fyrir Chelsea á síðustu leiktíð og þeir eru betri en við erum."

Kasper Schmeichel hefur verið að glíma við meiðsli og misst af síðustu sex deildaleikjum. Ranieri segir að hann gæti spilað gegn City um helgina.

„Hann er allur að koma til og kannski verður hann tilbúinn," sagði Ranieri.
Athugasemdir
banner
banner
banner