Eintracht Frankfurt 0 - 0 Hoffenheim
Rautt spjald:Timothy Chandler, Eintracht Frankfurt ('83)
Rautt spjald:Timothy Chandler, Eintracht Frankfurt ('83)
Eintracht Frankfurt og Hoffenheim gerðu markalaust jafntefli í þýsku Bundesligunni í kvöld.
Hápunktur leiksins var rautt spjald sem Timothy Chandler, leikmaður Frankfurt fékk en annars var leikurinn ekki mikið fyrir augað.
Fyrir leikinn voru liðin í 4. og 5. sæti og í mikilli baráttu um Evrópusæti og var því mikið undir.
Liðin halda því sínum sætum en Borussia Dortmund getur nú skellt sér upp fyrir þau bæði með sigri á morgun.
Athugasemdir