Andoni Zubizarreta, fyrrum yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, viðurkennir að félagið hafi lotið í lægra haldi gegn Newcastle í baráttunni um Ayoze Perez.
Framherjinn gekk í raðir Newcastle frá Tenerife árið 2012 og hefur skorað 12 mörk í 56 deildarleikjum á Englandi. Hann er einungis 22 ára gamall og hafði skorað 16 mörk í 34 leikjum fyrir Tenerife í næst efstu deild.

„Leikmaður sem ég gat ekki fengið? Við reyndum að fá Ayoze Perez," sagði Zubizarreta.
„Mér fannst hann vera áhugaverður leikmaður, fyrst fyrir B-liðið, eins og Denis Suarez."
Athugasemdir