Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 10. febrúar 2016 22:29
Arnar Geir Halldórsson
Enski bikarinn: WBA komið áfram eftir vítaspyrnukeppni
Hetja WBA í kvöld
Hetja WBA í kvöld
Mynd: Getty Images
Peterborough United 1 - 1 West Brom
1-0 John Taylor ('55 )
1-1 Darren Fletcher ('71 )
WBA vann 4-5 eftir vítaspyrnukeppni

West Bromwich Albion er komið áfram í 16-liða úrslit enska bikarsins eftir sigur á C-deildarliði Peterborough í vítaspyrnukeppni.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom John Taylor C-deildarliðinu yfir snemma í síðari hálfleik.

Fyrirliði WBA, Darren Fletcher jafnaði metin skömmu síðar og þannig stóðu leikar eftir venjulegan leiktíma. Því þurfti að framlengja.

Ekkert mark var skorað í framlengingunni og því gripið til vítaspyrnukeppni þar sem úrvalsdeildarliðið hafði betur en Ben Foster varði tvær vítaspyrnur heimamanna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner