KR hefur hafnað tilboði frá sænska félaginu Norrköping í framherjann Hólmbert Aron Friðjónsson samkvæmt öruggum heimildum Fótbolta.net.
Hólmbert fór til Svíþjóðar á dögunum þar sem hann æfði með Norrköping.
Sænska félagið lagði fram tilboð í kjölfarið en KR-ingar ákváðu að hafna því.
Hinn 22 ára gamli Hólmbert kom til KR síðastliðið sumar eftir að hafa verið á mála hjá Celtic í tæp tvö ár. Á þeim tíma lék hann einnig með Bröndby á láni.
Hólmbert er uppalinn hjá HK en hann spilaði með Fram frá 2011 til ársins 2013 þegar Celtic keypti hann.
Athugasemdir