Huub Stevens hefur sagt starfi sínu sem knattspyrnustjóri Hoffenheim lausu vegna heilsufarsástæðna.
Stevens tók við liðinu af Markus Gisdol í lok október og hefur því aðeins stýrt liðinu í 10 deildarleikjum.
„Ég tók þessa ákvörðun í samráði við lækna. Mér þykir leitt að þurfa að yfirgefa félagið á svona erfiðum tíma en ég vona að allir hafi skilning á að ég set heilsu mína í forgang,” segir í tilkynningu hins 62 ára gamla Stevens.
Hvorki hefur gengið né rekið hjá Hoffenheim á tímabilinu en liðið situr í næstneðsta sæti Bundesligunnar, sjö stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir